Fyrir ári síðan báðum við Sigurð Val bæjarstjóra að skrifa pistil í tilefni opnunar vefsins 245.is og fara yfir helstu mál sem voru á döfinni hjá bæjarfélaginu. Nú ári síðar á 1. árs afmæli vefsins fannst okkur vel við hæfi að rifja upp þau mál og kanna hvernig staðan er í dag. Sigurður Valur settist hjá okkur við sjávarborðið og var hress að vanda.
Við hér hjá 245.is höfum gaman af því að fylgjast með heimasíðum Sandgerðinga eins og svo margir aðrir og förum reglulega í heimsókn á vefina. Í einni slíkri heimsókn uppgötvuðum við Þorvald Þorvaldsson eða Valda eins og hann er kallaður í daglegu tali. Valdi hefur búið í Sandgerði í tæpt ár og líkar vel. Honum er margt til lista lagt og leikur m.a. í íslenskri sjónvarpsþáttaröð sem sýnd verður í RÚV í haust. Okkur fannst alveg tilvalið að plata hann í yfirheyrslu í tilefni dagsins og buðum honum sæti við sjávarborðið.
Hljómsveitin Tommygun Preachers gefur út sinn fyrsta geisladisk
Viðtal við Smára Guðmundsson
Smári Guðmundsson sem margir þekkja úr hljómsveitinni Klassart hefur haft í nógu að snúast, en hljómsveitin Tommygun Preachers sem Smári er einnig meðlimur í er að gefa út sinn fyrsta geisladisk.
KRASS ehf. var stofnað 1997 af Hrafnhildi Valgarðsdóttur og dóttur hennar Theódóru. Blaðamaður 245.is heimsótti Hrafnhildi og mann hennar Sigurjón, tók þar myndir og forvitnaðist um útgáfuna.
Klassart var upphaflega dúett skipaður systkinum úr Sandgerði, þeim Fríðu Dís og Smára Guðmundsbörnum. Þau hafa nýlega klárað upptökur á sinni fyrstu plötu ,,Bottle of Blues" sem er væntanleg í verslanir á næstu dögum. Í kjölfarið er Klassart ekki lengur dúett heldur 6 manna hljómsveit sem mun fylgja plötunni eftir með spilamennsku um land allt.