|
 Efra Sandgerði, elsta hús í Sandgerði, byggt 1883 Mynd: Reynir Sveinsson
Stjórn
Lionsklúbburinn heldur fundi sína í Efra Sandgerði og þeir eru haldnir 2 og 4 fimmtudag í hverjum mánuði sem hér segir:
46. starfsár 2009-2010
- 10. september - Félagsstarfið
- 24. september - Heimsókn
- 08. október - Félagsstarfið
- 22. október Konukvöld
- 12. nóvember- Félagsstarfið
- 26. nóvember - Fyrirlesari
- 12. desember - Hangikjöt
- 14. janúar - Félagsstarfið
- 28. janúar - Þorrablót
- 11. febrúar - Félagsstarfið
- 25. febrúar - Heimsókn
- 11. mars - Félagsstarfið
- 25. mars - Fyrirlesari
- 08. apríl - Félagsstarfið
- 22. apríl - Gönguferð
- 14. maí - Lokafundur
Lionsklúbbur Sandgerðis var stofnaður 18. febrúar 1965 og er þ.a.l. á sínu 46. starfsári. Fyrsti formaður og aðalhvatamaður að stofnun klúbbsins var Sveinn Aðalstein Gíslason, rafveitustjóri.
Klúbburinn starfar að líknar og menningarmálum í Sandgerði og víðar. Má nefna árlega ferð með eldri íbúa bæjarins í leikhús í samvinnu við Sandgerðisbæ, sem hefur mælst vel fyrir.
Starfsárið hefst venjulega í september og stendur fram í maí. Haldnir eru að meðaltali 17 fundir á starfsárinu. Reynt er að hafa dagskrá funda fjölbreytta og skemmtilegar rökræður um ýmis mál, auk þess eru fengnir fyrirlesarar og farið í heimsóknir svo eitthvað sé nefnt.
Stærsta verkefni klúbbsins hefur verið að bjarga og endurbyggja elsta húsi Sandgerðis, Efra Sandgerði, sem byggt var 1883. Það hefur tekið mörg ár að endurbyggja húsið, enda gert af Lionsfélögum í sjálfboðavinnu.
Húsið á sér merka sögu. Það er byggt úr timbri, sem var í seglskipinu Jamestown. Skipið var hlaðið af timbri og rak mannlaust að landi við Ósabotna 1881. Það var 100 metra langt og 20 metra breitt. Fyrsta símstöð í Sandgerði var í Efra - Sandgerði.
Þeir sem hafa áhuga á að kynnast starfi Lions geta haft samband við Lionsfélaga sem geta boðið þeim með sér á Lionsfund, eða haft samband við stjórn Lionsklúbbsins.
Upplýsingar:
Lions félagar 2009-2010:
- Ástvaldur Jóhannesson
- Birgir Kristinsson
- Björn Arason
- Björn Maronsson
- Carl B. Gränz
- Eðvarð Ólafsson
- Elías Sigvarðsson
- Friðrik Þór Friðriksson
- Gunnar Guðbjörnsson
- Gunnlaugur Þ. Hauksson
- John Hill
- Marel Andrésson
- Ottó Þormar
- Ólafur B. Erlingsson
- Ólafur Gunnlaugsson
- Óskar F. Jóhannsson
- Óskar Gunnarsson
- Pétur Brynjarsson
- Reynir Sveinsson
- Sigurður H. Guðjónsson
- Sigurður S. Sigurðsson
- Sigurður V. Ásbjarnarson
- Sigurður Þ. Jóhannsson
- Stefán Sigurðsson
- Örn Gissurarsson
 Næturstemning
Lionshreyfing, félagslíf, Medic Alert, vímuvarnir, Lions Quest, sjónvernd, Orkester Norden, Lions Clubs International, Lionsklúbbur |