Á laugardaginn var vinsældarlisti Rásar 2 fyrir vikuna 29. – 04. september kynntur og var Klassart þar í efsta sæti með lagið sitt "Gamli grafreiturinn".
Nokkrir krakkar bönkuðu upp á hjá 245.is rétt í þessu, en þau fundu lítinn kött niður á bryggju. Hann virðist passa vel við lýsinguna á kisu sem fannst um daginn við Norðurtún.
Fyrsti bæjarmálafundur S-listans á kjörtímabilinu verður haldinn í Vörðunni mánudaginn 6. september n.k. kl. 20:00. Þetta er opinn fundur sem er ætlaður því fólki sem starfar á vegum S-listans, stuðningsfólki listans sem og öllu áhugafólki um bæjarmálin.
Við höfum sett saman myndband frá Sandgerðisdögum 2010 sem inniheldur ýmis myndbrot frá hátíðinni. Þar má sjá klippur úr skrúðgöngu og af hátíðarsvæði svo eitthvað sé nefnt.
Föstudaginn 20. ágúst tóku nemendur skólans þátt í ratleik í tengslum við Sandgerðisdaga. Starfsfólk skólans skipulagði ratleikinn, setti upp stöðvar og tóku þátt í leiknum með nemendum.
Jónatan Jóhann Stefánsson vélstjóri á Klapparstíg 1 í Sandgerði opnaði heimili sitt á Sandgerðisdögum og bauð áhugasömum að skoða bátasafnið sitt. Þar má m.a. finna eftirlíkan af hinum sögufrægu skipum Titanic og Gullskipinu svokallaða.